Ég er búin að vera að vesenast með hvaða myndir ég ætti að setja inn næst. Ég er ekki enn búin að gefa mér tíma til að fara í gegnum allar snjómyndirnar og velja úr. Svo eru kirkjugarðamyndir...af því að við erum svo spes hehe...en ég vil hafa staðsetninguna og heitin rétt. Svo langar mig að hafa sér dálk fyrir Asheville myndir. Ég er ekki komin með stórt safn af Asheville myndum. Fór niður í bæ um daginn að rölta með Jesse litla og valdi náttúrulega að gera það í roki og skítakulda...hehe...þannig að ég tók bara örfáar myndir. Þær fá að bíða betri tíma. En núna um daginn, eftir að við fjölskyldan höfðum verið að þvælast um (það var snjódagur hjá Sylvani, frí í skólanum vegna hálku hvar svo sem hálkan var) þá sáum við svo fallegt sólsetur. En við vorum föst í umferðinni. Vance vissi um góðan stað til að taka myndir en við lentum á hverju rauða ljósinu á eftir öðru og vorum næstum því búin að missa af öllu saman. Mér tókst að taka nokkrar myndir. Ég er enn að læra á myndavélina mína og hef ekki tekið sólarlags myndir áður þannig að ég var pottþétt ekki með allt stillt rétt (auðveldast hefði verið að stilla bara á Auto hehe).
Hér fyrir miðju er ráðhúsið. Safnið sem Vance er að vinna á og safna heimildum fyrir er fyrir neðan það.
Hér sést betur ráðhúsið. Lögreglustöðin er til vinstri við það og á milli þeirra er Pack's Tavern (veitingastaður) eigandi hans er líka eigandi húsnæðissins sem fangelsis safnið er í og er það á milli ráðhússins og veitingastaðarins. Fyrir framan ráðhúsið er buslgarður fyrir börn borgarinnar. Hægra megin við turn ráðhússins sést í Vance minnismerkið (gæti þurft að smella á myndina til að sjá hana stærri). Umferðargatan heitir Patton Avenue og liggur frá miðbænum og yfir í Vestur Asheville. Hægra megin við ráðhúsið er dómshúsið (court house), þar er hægt að fá ýmis gögn eins og fæðingarvottorð og dánar vottorð langt aftur í tímann.
Hér er mynd af fangelsis safninu. Ekki gömul mynd, ég fiktaði aðeins við hana í photoshop fyrir Vance. Þetta húsnæði var geymsla fyrir lögregluna fyrir hundrað árum eða svo. Og við erum nýbúin að komast að því að einn varðstjórinn fyrirfór sér í þessu húsi árið 1924...fyrir akkúrat 87 árum í þessari viku. Í bakgrunninn sést glitta í ráðhúsið.
Hér er póstkort frá 1940 af borginni. Hún hefur stækkað ansi mikið síðan þá en það eru þónokkur hús þarna sem standa enn. Ráðhúsið, lögreglustöðin og Pack's Tavern (sem var eitthvað annað þá) þar á meðal.
Ég læt þetta duga í bili. Það eiga eftir að koma fleiri Asheville póstar og hægt verður að smella á Asheville hérna til hliðar til að sjá þá alla saman.


0 comments:
Sendu inn athugasemd