föstudagur, febrúar 25, 2011

Lake Lure

Við skelltum okkur í smá rúnt til Lake Lure um daginn. Um að gera að nota góða veðrið svona þegar það er ekki bara gluggaveður. Það var smá vindur en annars bara ágætis peysuveður.
Sylvan tók myndavélina sína með.


Strákarnir mínir 3 stilltu sér upp þannig að bæði ströndin og skógareldarnir sæjust í baksýn. Eða allavega reykurinn sem fylgir skógareldunum.
Ég reyndi að súmma inn á svæðið en sólin var svo björt að ég sá ekkert hvað ég var að gera og gafst upp.  
Sylvan var duglegur stóri bróðir og ýtti kerrunni svolítinn spöl. 
Þetta par reyndi að fela sig fyrir okkur. Ég lét strákana ganga af stað á undan mér og beið til að sjá hvort þau myndu ekki koma úr felum svo ég gæti tekið mynd af þeim. Það tókst, svona er maður stundum snjall. 
Ef ég gæti tekið þennan bekk frá fyrir sumarið þá myndi ég gera það. Flottur staður til að busla aðeins í vatninu ef maður tímir ekki að borga sig inn á ströndina :) 
Við enduðum svo á leikvelli, fengum okkur nesti og strákarnir fengu smá útrás. 
Við fundum þennan á meðan við gengum um, hann var að næla sér í smá yl í sólinni greyið.

0 comments: