Loksins fengum við smá gott veður. Síðasta laugardag þurfti Sylvan að fara í skólann til að bæta upp snjó dag (sem var mjög umdeildur á meðal foreldra). Eftir skóla fór hann svo í heimsókn til vinkonu sinnar og svo skelltum við okkur á flakk. Fórum á leikvöll í Norður Asheville og þar var fullt af fólki. Held mér hafi samt tekist að mestu að sneiða framhjá fólkinu þegar ég tók myndir af strákunum. Sylvan náði að hjóla smá erftir allt of langa hjólapásu og Jesse prófaði sandkassann.
Við rúntuðum svo um Asheville aðeins og rákumst á kráku sem hafði fundið sér besta sætið og útsýnið í bænum.
Við keyrðum upp að Helen's Bridge og Sylvan og Vance fóru á brúna sem er einn af draugastöðum Asheville.
Svo keyrðum við lengra upp á fjallið í leit að góðum stað til að taka myndir af sólsetrinu. Við fundum þennan líka fína stað og Vance lagði bílnum snilldarlega.
Sólin var svo sterk að myndavélin mín var ekki alveg að höndla birtuna.....og ég kann ekki nógu vel á hana til að geta lagað bleiku deplana. Mér tókst að taka betri myndir þegar sólin var komin aðeins lengra á bak við fjöllin. En þær myndir bíða betri tíma.
Þegar ég var búin að taka billjón myndir spurði Vance mig hvort ég hefði náð að taka mynd af því þegar fuglarnir flugu í sólarlagið og ég kannaðist nú ekkert við að hafa séð neina fugla. Spurning að maður fái sér bara ný gleraugu, held ég svei mér þá! Nei, ég var svo upptekin við að reyna að finna út hvernig ég gæti losnað við þessa bleiku bletti sem voru að þvælast fyrir mér, að ég tók ekkert eftir fuglunum.






0 comments:
Sendu inn athugasemd