Loksins vex eitthvað af viti í blómabeðinu. Páskaliljur, túlipanar og krókusar.
Þetta er reyndar bara í hluta af beðinu, á eftir að ákveða hvað ég ætla að hafa í restinni, ætli ég fylli það ekki bara í haust af túlipönum af ýmsum stærðum og gerðum. Ég ætla ekki að setja niður nein sumarblóm, það er allt of heitt hérna á sumrin til að reyta arfa og moskítóflugurnasr hreinlega éta mig upp. Það er spáð rigningu næstu daga en ég vona að það komi smá sólarglæta svo ég geti notið þess að horfa á blómin mín á meðan strákarnir leika sér. Það er hægt að smella á myndirnar til að sjá þær stærri.
0 comments:
Sendu inn athugasemd